Nemendur verða með heljarinnar kolaportsstemningu í skólanum þessa daga. Þar verða fötin seld og einnig boðið upp á veitingar. Í tilkynningu frá nemendur FSN segir að allir séu velkomnir í skólann til að taka þátt í söfnuninni og versla í FSN - Portinu. „Þau föt eða það sem þið ákveðið að gefa og ekki selst fer síðan til Rauða Krossins og rétta leið þangað sem þörfin er mest,“ segir í tilkynningunni, en þar segir að auk fata séu skór og töskur vel þegið.
Sólardagar
Fyrir hádegi í dag, fimmtudag:
Haiti-söfnun – í Anddyri skólans og Dimma
Söngleikur - Grundarfjarðarkirkja
Kvikmyndir - Raun
Félagsvist – Stóra sal
Jóga – Býli
Stomp – Byrjar í stóra sal
Prjónakaffi – Hæð
Póker – matsal
Eftir hádegi í dag, fimmtudag:
Pönnukökubakstur - Matsal
Haiti-söfnun – sama stað
Gettu betur, borðspil -
Dans - íþróttasal eða Býli(fer eftir fjölda)
Kvikmyndir - Fiskabúr
Hellaskoðun – Farið verður með rútu
Júdó - íþróttahúsið
Fyrir hádegi á föstudegi
LAN - Raun
Haiti - söfnun – Sama stað
Gettu betur, leikir og spil - Hæð
Dans / Söngleikur – Býli, íþróttasal
Kvikmyndir - Fiskabúr
Stomp – Stóra sal
Hárgreiðsla – Dimma
Söngkeppni – verður í hádeginu til 13:30
Eftir hádegi á föstudegi
Gólið
Rútur fara heim 13:30
* Með fyrirvara um breytingar
Á meðfylgjandi mynd er hópurinn sem stendur fyrir fatasöfnuninni ásamt Helgu Lind námsráðgjafa sem er lengst til vinstri á myndinni.
|