Einn mesti annadagur bakara, bæði í heimahúsum og bakaríum, er í dag á bolludaginn. Gera má ráð fyrir að hundruðir þúsunda bolla af öllum gerðum renni nú ljúft niður um kok landsmanna. Bakarar tóku daginn snemma. Heimir Guðmundsson í Harðarbakaríi á Akranesi sagði að bolluvertíðin hafi byrjað um helgina en nái hámarki í dag þegar framleitt er upp í pantanir fyrirtækja. Heimir hafði ekki tölu á þeim fjölda af bollum sem Harðarbakarí seldi, en sagði þær skipta þúsundum. Á myndinni er Áslaug Einarsdóttir með girnilegar rjómabollur í afgreiðslu bakarísins.
|