Um 60 manns mættu á stofnfund Framfarafélags Borgfirðinga sem haldinn var síðasta sunnudag. Mikill einhugur var í fundarmönnum og bjartsýnistónn. Samþykkt voru lög þar sem meðal annars segir að tilgangur félagsins sé að styðja við bakið á fjölbreyttu atvinnulífi og nýsköpun til að treysta byggð í hinum dreifðu byggðum Borgarfjarðar. Þá er einnig markmið félagsins að standa vörð um menningarstofnanir í héraðinu. Formaður framkvæmdastjórnar hins nýja félags var kosinn Helgi Eyleifur Þorvaldsson. Rætt verður við hann í Skessuhorni og kynnt það helsta sem gerðist á stofnfundinum, meðal annars margar athyglisverðar hugmyndir sem viðraðar voru.
|