




25. apríl 2012 15:01 |
Hannes M. Ellertsson og Sigþór Bogi Eiríksson |
Tækifærin eru hér |
|
Atvinnu og nýsköpunarhelgar hafa verið haldnar á Suðurnesjum, Hornafirði, í Reykjavík og á Akureyri, þátttakendur skipta hundruðum og fjölmargar snjallar hugmyndir hafa litið dagsins ljós. Sérfræðingar Landsbankans og Innovits veita ráðgjöf sem og fjöldi frumkvöðla og annarra sérfræðinga. Markmiðið er að virkja einstaklinga og frumkvöðla með því að hvetja og aðstoða þá við þróun viðskiptahugmynda. Ekki síður vilja aðstandendur helganna skapa vettvang fyrir einstaklinga til að skiptast á skoðunum og efla tengsl. Á Akranesi fer starfið fram í aðalsal Fjölbrautarskóla Vesturlands og hefst klukkan 17:30 á föstudag. Þá halda þátttakendur með viðskiptahugmynd stutta kynningu á sinni hugmynd og engu skiptir þó hún sé á byrjunarreit eða kvikni jafnvel á staðnum. Kannað er hvaða hugmyndir fá mestan hljómgrunn meðal þátttakenda og svo er unnið með þær yfir helgina í hópavinnu. Á sunndag verða viðurkenningar veittar fyrir bestu hugmyndirnar. Þátttakendur geta í kjölfarið þróað sínar viðskiptahugmyndir áfram og fengið til þess ráðgjöf frá Innovit og Landsbankanum með það að markmiði að sem flestar hugmyndir verði að veruleika. Við viljum hvetja alla, bæði þá sem eru með viðskiptahugmynd og þá sem vilja vinna með frumkvöðlum að framgangi hugmynda þeirra, til að taka þátt. Enginn kostnaður fylgir þátttöku en skráning fer fram á www.anh.is . Þar er þar einnig hægt að nálgast dagskrá og nánari upplýsingar um Atvinnu- og nýsköpunarhelgina. Við lítum svo á að á Akranesi blasi við fjöldi tækifæra til að byggja upp í atvinnulífinu. Með því að efla frumkvöðlastarf og vöruþróun eykst fjölbreytnin og svæðið byggir á traustari stoðum til framtíðar.
Hannes M. Ellertsson, útibússtjóri Landsbankans, Akranesi Sigþór Bogi Eiríksson, aðstoðarútibússtjóri Landsbankans, Akranesi
|
|
|
|
Samstarfsaðilar
|