Áhugafélagið ,,Fjárfest í flygli“ var stofnað fyrir nokkrum mánuðum til að fjárfesta í flygli fyrir þennan menningarsal. Búið er að kaupa bráðabirgðar flygil, lítinn og nettan, sem hefur reynst vel í að efla tónlistarviðburði í Hjálmakletti undanfarið. Haldnir hafa verið nokkrir styrktartónleikar fyrir söfnunina sem og fyrir einstaklinga á svæðinu, almennir tónleikar, afmælisveislur, sælkerakvöld og tónlistarveislur sem allar hafa nýtt sér þennan flygil. Tónaflóð hans hentar þó ekki húsnæðinu miðað við þau gæði sem húsnæðið býður upp á.
Félagið hefur aðeins það markmið að safna fyrir varanlegum flygli í salinn sem fær notið sín og efla enn frekar þann fjölbreytileika í tónlistar– og menningarlífi sem salurinn getur boðið upp á. Áætlaður kostnaður við kaupin, flutning, ábreiður o.fl. er honum þarf að tilheyra er upp á 8,8 milljónir kr.
Nýlega voru send út bréf til fyrirtækja og stofnana þar sem leitað er eftir stuðningi í verkefnið. Það er von okkar sem stöndum að félaginu að aðilar taki vel í erindið. Einnig hvetjum við einstaklinga eða félagasamtök sem áhuga hafa og getu til að leggja hönd á plóg að leggja verkefninu lið. Hægt er að leggja fjárhæð inná eftirfarandi reikning:
Söfnunarreikningurinn er 0326-26-6303 Kt. 6303120270 (Fjárfest í flygli)
Njótum þess að eiga góðan menningarsal sem er öllum aðgengilegur og í heimahéraði!
Ásdís Helga Bjarnadóttir, Hvanneyri
|