Þuríður hefur alla tíð notið mikillar virðingar samstarfsfólks síns og nemenda á öllum skólastigum enda afar farsæl í störfum sínum. Hún hefur fengist við ýmis önnur störf í gegnum tíðina og skrifað og þýtt efni í blöð, tímarit og bækur. Þá hefur hún unnið ötullega fyrir Sögufélag Borgarfjarðar og m.a. verið ritstjóri og einn af höfundum af seinni bindum Borgfirskra æviskráa og er enn að.
Í tilefni afmælis Þuríðar hefur samantekt um ævi hennar og störf verið sett á heimasíðu Safnahúss: www.safnahus.is. Um leið og Þuríði eru fluttar bestu hamingjuóskir í tilefni afmælisins vill starfsfólk Safnahúss Borgarfjarðar þakka henni gott samstarf og einstaka velvild og hjálpsemi í garð safnanna í gegnum tíðina.
Fyrir hönd starfsfólks í Safnahúsi
Sævar Ingi Jónsson, héraðsbókavörður
|