Raftasýning framundan
Stutt er í tíundu bifhjólasýningu Raftanna í Borgarnesi. Hún verður haldin laugardaginn 12. maí í Hjálmakletti í Borgarnesi. Að venju verður mikið af hjólum, innan sem utandyra, sem gaman verður að skoða ásamt fleiru tengdu sportinu. Á útisvæði verða Hjólaleikar en það eru ýmsir leikir og þrautir sem iðkaðir eru á ýmsum samkomum hjólafólks. Enn og aftur erum við Raftar orðlausir yfir þeim stuðningi sem fyrirtæki sýna okkur. Án þessa dygga stuðnings gætum við ekki boðið gestum frían aðgang að sýningunni.
Raftar, Bifhjólafjelag Borgarfjarðar, varð tíu ára á síðasta ári og var það að auki annasamasta ár klúbbsins. Eins og undanfarin ár héldum við sýninguna okkar og til að hafa nú aðeins meira að gera þá sáum við um Landsmót bifhjólafólks 2011. Í upphafi þess ferlis vorum við ákveðin að hafa mótið í heimahéraði, en fengum ekki mikinn meðbyr frá löggæslu og stjórnendum sveitarfélagsins. Leituðum við þá annarra leiða og tóku Húnvetningar vel á móti okkur, að venju, og var mótið haldið með pompi og prakt í Húnaveri. Öll sú vinna sem fylgir atburðum sem þessum er ekki framkvæmd á einni nóttu né af einum eða tveimur félögum. Raftar unnu sína vinnu sem hópur og skilaði verki sem við erum ákaflega stolt af. Í ágústmánuði var svo árleg Raftaútilega, þar sem börn og barnabörn Rafta taka þátt í leikjum og skemmtunum yfir heila helgi. Margt annað var til skemmtunar gert, hjólaferðir og heimsóknir og að sjálfsögðu Ljósanótt sem við höfum sótt frá upphafi þeirrar hátíðar.
Raftar eru komnir með aðstöðu til funda og samkomu í húsi Bjsv. Brákar í Brákaey. Breytti það miklu fyrir félagsstarfið. Fundað er tvisvar í mánuði og óformlegur samkomur eru haldnar eftir þörfum. Aðstöðuna gerðum við upp frá grunni og fór þar handlagni og hugmyndaauðgi hamförum. Innan Rafta eru margar nefndir sem sinna hinum ýmsu verkefnum s.s. vetrarnefnd, sem sér um að gera hjólafólki veturinn bærilegan, vornefnd sem sér um að starta sumrinu, sumarnefnd sem sér um sumarútilegu Rafta og loks sér haustnefnd um aðalfund og aðrar haustsamkomur. Þá eru ótaldar sýningarnefnd, auglýsinganefnd, húsnefnd og svo að sjálfsögðu aðalstjórnin. Félagatalið er komið vel yfir eitt hundrað manns og þar af eru um 80 manns virkir.
Raftar óska þér gleðilegs sumar og bjóða þér og þínum á Bifhjólasýninguna þann 12. maí í Borgarnesi.
Sjáumst á vegunum!
Jakob Guðmundsson Raftur #12
|