




14. maí 2012 09:54 |
Ásmundur E Daðason |
Jöfnun rafmagns- og húshitunarkostnaðar |
|
Jöfnunarkerfið virkar ekki í dag Núgildandi kerfi við jöfnun rafhitunar virkar þannig að iðnaðarráðherra ákveður upphæð niðurgreiðslna eftir samþykkt fjárlaga ár hvert. Slík ákvörðun er ekki einföld þar sem endurskoðunarákvæði niðurgreiðslu á hverja kílóvattsstund er ekki bundin fyrirfram gefnum ramma og þarf því að byggjast á mati. Kerfið er þungt í vöfum og með því að ráðherra ákveði tiltekna fjárhæð fyrir ákveðið tímabil, nær kerfið ekki að mæta örum breytingum á verði nema með sífelldri endurskoðun. Dreifing raforku er niðurgreidd á nánar tilgreindum svæðum með það að markmiði að stuðla að jöfnun kostnaðar við dreifingu raforku til almennra notenda. Ráðherra ákveður í reglugerð ákveðna krónutölu á hverja kílóvattstund sem niðurgreiðsla dreifingarkostnaðar á að vera og þarf í þeim efnum að reyna að sjá fyrir verðþróun komandi mánaða. Reynist mat ráðherra ekki rétt þarf að breyta reglugerðinni í samræmi við þróunina. Af þessu má sjá að kerfinu er í raun handstýrt af ráðherra og ber það þess merki að verið er að elta óhjákvæmilegar verðlagsbreytingar. Það hefur það m.a. í för með sér að kostnaður notenda á þeim svæðum þar sem dreifing raforku er niðurgreidd hefur aukist vegna þess að niðurgreiðslan hefur ekki náð að halda í við verðþróun. Jöfnunarsjóður vegna húshitunar- og raforkukostnaðar Við höfum fyrirmynd af því hvernig hægt sé að tryggja jöfnuð án beinnar aðkomu ráðherra eða ríkisstjórnar. Í dag er starfræktur flutningsjöfnunarsjóður olíuvara sem er fjármagnaður með sérstöku flutningsjöfnunargjaldi á allar olíuvörur sem fluttar eru til landsins. Neytendastofa ákveður á þriggja mánaða fresti hversu hátt gjaldið er og skal gjaldið nægja til að greiða flutningskostnað á olíuvörum milli staða innan lands. Þær tillögur sem Framsóknarflokkurinn hefur lagt fram á Alþingi fela í sér að komið verði á fót sambærilegum jöfnunarsjóði fyrir húshitunarkostnað og kostnað við dreifingu á raforku. Gert er ráð fyrir því að sjóðurinn yrði fjármagnaður með jöfnunargjaldi á hverja framleidda einingu af orku, raforku eða jarðvarmaorku, sem næmi þeim kostnaði sem nauðsynlegur er á hverjum tíma til að niðurgreiða að fullu húshitunarkostnað og kostnað við dreifingu raforku. Þannig væri mögulegt að ná fullkominni jöfnun á kostnaði á landsvísu. Nái tillagan fram að ganga yrði skref stigið í rétta átt varðandi aukið byggðajafnrétti á Íslandi.
Ásmundur Einar Daðason. Höf. er alþingismaður Framsóknarflokksins í NV kjördæmi.
|
|
|
|
Samstarfsaðilar
|