Prentað miðvikudaginn 22. maí kl. 18:43 af www.skessuhorn.is
Yfirflokkur: Fyrirtæki - þjónustaYfirflokkur: FólkiðYfirflokkur: StjórnsýslaYfirflokkur: Skessuhorn
Spurning vikunnar

Fylgist þú með íslenska boltanum?

Já, alltaf

Já, stundum

Nei, aldrei

Vil ekki svara

Leitarvélar
Skessuhorn
Leit.is
Símaskrá
Firmaskrá
Embla
Google
Athyglisverðar síður

 

   

  

 

 

 

 

 

 

 

 

 

  

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 
8. júní 2012 12:01

Jóna Valgerður Kristjánsdóttir

Opið bréf til bankastjóra Landsbankans

Þann 1. júní sl. barst mér í hendur staðlað bréf stílað á mig persónulega frá Landsbankanum. Bréfið var dagsett 25. maí 2012 á Patreksfirði en á umslagi var það póstlagt í Reykjavík 31. maí 2012. Þar er því lýst  hvernig hagræðingaraðgerðir bankinn er að fara í með lokun útibúa víðsvegar um landið 1. júní og meðal annarra  útibúa er það á mínu svæði í Króksfjarðarnesi í Austur-Barðastrandarsýslu, þar sem ég hef verið viðskiptavinur í 17 ár eftir að ég flutti hingað og þar áður viðskiptavinur bankans á Ísafirði þar sem ég bjó áður. Nú á að sameina útibúið í Króksfjarðarnesi útibúinu á Patreksfirði sem er í meira en 200 km. fjarlægð frá Króksfjarðarnesi. Í bréfi þessu er ég boðin velkomin til að koma við í útibúinu á Patreksfirði þar sem ég fái persónulega þjónustu. Og bréfið endar á setningunni: „Við hlökkum til að taka vel á móti þér á Patreksfirði og Tálknafirði.”. Undir þetta er svo   PRENTAÐ: Starfsfólk Landsbankans á Patreksfirði og Tálknafirði.

Ég geri ekki ráð fyrir að það starfsfólk sem samdi þetta bréf sé á Patreksfirði, því þar vita þau ósköp vel að leið mín liggur ekki þangað að sækja þjónustu þó þar sé sjálfsagt hið besta starfsfólk. Bæði er vegalengdin yfir 200 km aðra leið þannig að ég þyrfti á fimmta hundruð km að aka til að sækja þessa þjónustu, auk þess eru þarna yfir 50 ára gamlir fjallvegir sem verða ófærir að vetrarlagi og um eyðibyggðir að aka þar sem ekki er völ á aðstoð komi eitthvað fyrir. Mér finnst því í hæsta máta ósvífið af Landsbankanum að bjóða mér persónulega þjónustu á Patreksfirði.

Að lokum vil ég segja þetta. Bankinn segist hafa markað sér samfélagslega stefnu og þar eru fimm málaflokkar þar sem viðskiptavinurinn er í fyrsta sæti. Stefna bankans er á engan hátt í samræmi við þau loforð sem fylgdu fundaferð þinni um landið fyrir nokkrum mánuðum. Með þessu á að spara 400 milljónir króna á sama tíma og bankinn hagnaðist um 7,7, milljarða á fyrsta ársfjórðungi þessa árs. Að tala um að einhver útibú séu ekki rekin með hagnaði er markleysa. Ég veit að útibúið hér hefur verið réttu megin við núllið þó hagnaður hafi ekki verið mikill. En er ekki fyrirtækið skoðað í heild? Í stóru fyrirtæki skyldi maður ætla að þjónustan skipti máli og ein deildin vegur þar aðra upp í kostnaði. Þessar aðgerðir eru sem blaut tuska í andlit þeirra sem verið hafa viðskiptavinir bankans í áratugi og framkoman við starfsfólki sem fékk að vita þetta 30 mínútum áður en það fór í fjölmiðla er með eindæmum kaldranaleg. Það fólk hefur ekki að neinu öðru að hverfa. Aðgerðirnar skapa erfiðleika fyrir alla þá sem ekki eru með heimabanka og það er stór hluti eldri borgara. Jafnframt skapar það mikla erfiðleika fyrir allan atvinnurekstur þegar engin fjármálastofnun er í öllu sveitarfélaginu.

Ég mun að sjálfsögðu flytja öll mín viðskipti og þeirra fyrirtækja og félaga sem ég hef umsjón með til annarra fjármálastofnana og það er ég viss um að fleiri í sveitarfélaginu munu gera. Með þökk til þess starfsfólks Landsbankans sem hefur þjónað okkur hér  einstaklega vel á liðnum árum, en hafi stjórnendur Landsbankans litla þökk.

 

Reykhólahreppi 2. júní 2012.

Jóna Valgerður Kristjánsdóttir

formaður Landssambands eldri borgara

f.v. sveitarstjóri Reykhólahrepps og f.v. alþingismaður

 

 


Til baka


yfirlit greina

 
Vefpóstur
Vestfirðir Suð-Austurland Vesturland Austurland Norðurland Suð-Vesturland Landið allt Suðurland
Kjalarnes 18:30  NNV 5  8°C
Akrafjall 18:30  A 6  7°C
Hafnarfjall 18:30  NA 3  7°C
Vatnaleið 18:30  NV 3  5°C
Hraunsmúli 18:30  VSV 4  6°C
Fróðárheiði 18:30  S 2  2°C
Brattabr. 18:30  NNV 2  3°C
Holtav.h. 18:30  NA 3  2°C
Laxárdalsh. 18:30  NA 3  4°C
Svínad. 18:20  VNV 1  5°C
 
 
Samstarfsaðilar
Aðsendar greinar
 
Sveitarfélögin - fréttir
Snæfellsbær: Allir á sjó
Grundarfjarðarbær: Köttur í óskilum
Stykkishólmsbær: Tilkynning - Athugið
Stykkishólmsbær: 296. fundur bæjarstjórnar
Borgarbyggð: Ljóð unga fólksins
 
Fyrirtæki, stofnanir, þjónusta:
 
mbl.is - innlent