Prentað laugardaginn 25. maí kl. 19:21 af www.skessuhorn.is
Yfirflokkur: Fyrirtæki - þjónustaYfirflokkur: FólkiðYfirflokkur: StjórnsýslaYfirflokkur: Skessuhorn
Spurning vikunnar

Hvernig líst þér á nýju ríkisstjórnina?

Mjög illa

Frekar illa

Hlutlaus

Frekar vel

Mjög vel

Leitarvélar
Skessuhorn
Leit.is
Símaskrá
Firmaskrá
Embla
Google
Athyglisverðar síður

 

   

  

 

 

 

 

 

 

 

 

 

  

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 
14. júní 2012 06:01

Guðný Jóhannesdóttir

Þess vegna kýs ég Hannes Bjarnason

Undan farnar vikur hef ég velt því mjög fyrir mér hver skuli fá atkvæði mitt í komandi forsetakosningum. Lengi vel velti ég því fyrir mér að láta þær hreinlega fram hjá mér fara en sem lýðsræðislega þenkjandi manneskja vissi ég svo sem að það myndi ég ekki gera, ekki nema þá að ég færi og skilaði auðu.

Sl. sunnudag heyrði ég síðan í Hannesi Bjarnasyni þar sem hann var í viðtali í Sprengisandi og játa ég að hann kom mér skemmtilega á óvart. Ekki síst sú skoðun hans að hann teldi miður hversu tamt okkur Íslendingum er að rakka niður þá sem eru ekki sömu skoðunar og við sjálf. Að það að vera ósammála þýði að viðkomandi aðilar þurfi nánast að hatast hver við annan. Þó Hannes hafi notað annað orðalag þá var þetta eins og talað út úr mínu hjarta.

Ef við sem þjóð ætlum að komast upp úr þessum skotgrafahernaði sem hefur einkennt landið okkar síðustu ár þá verðum við að komast upp úr þessu fari að rífast og rífa hvert annað niður við hvert tækifæri.

Yfirvegaður málflutningur Hannesar og ekki síst málefnalegur málflutningur hreyf mig og minnti mig á hvað okkur vantar í umræðuna hér heima.

Okkur vantar málefnalega og jarðbundna leiðtoga. Þessa kosti hefur Hannes Bjarnason og þess vegna mun atkvæði mitt í komandi forsetakosningar lenda hjá honum. Ég skora á ykkur sem eigið eftir að ákveða ykkur að hætta að hugsa eins og það séu bara tveir frambjóðendur í framboði og hugleiða kosti hvers og eins frambjóðenda áður en þið takið afstöðu. Það gerði ég og Hannes Bjarnason varð fyrir valinu.

 

Guðný Jóhannesdóttir, viðburðastjórnandi og háskólanemi

 


Til baka


yfirlit greina

 
Vefpóstur
Vestfirðir Suð-Austurland Vesturland Austurland Norðurland Suð-Vesturland Landið allt Suðurland
Kjalarnes 19:10  VSV 4  5°C
Akrafjall 19:10  SV 6  6°C
Hafnarfjall 19:10  SSV 7  5°C
Vatnaleið 19:10  SA 7  4°C
Hraunsmúli 19:10  ANA 9  6°C
Fróðárheiði 19:10  ASA 4  4°C
Brattabr. 19:10  SSV 9  2°C
Holtav.h. 19:10  SSV 10  2°C
Laxárdalsh. 19:10  A 3  3°C
Svínad. 19:10  S 5  3°C
 
 
Samstarfsaðilar
Aðsendar greinar
 
Sveitarfélögin - fréttir
 
Fyrirtæki, stofnanir, þjónusta:
 
mbl.is - innlent