Prentað miðvikudaginn 19. júní kl. 09:31 af www.skessuhorn.is
Yfirflokkur: Fyrirtæki - þjónustaYfirflokkur: FólkiðYfirflokkur: StjórnsýslaYfirflokkur: Skessuhorn
Spurning vikunnar

Ferð þú á bæjar- eða héraðshátíð í sumar?

Já, fleiri en eina

Já, eina

Veit það ekki

Nei

Leitarvélar
Skessuhorn
Leit.is
Símaskrá
Firmaskrá
Embla
Google
Athyglisverðar síður

 

   

  

 

 

 

 

 

 

 

 

 

  

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 
28. júní 2012 11:04

Ari Trausti Guðmundsson

Áratugir á ykkar slóðum

Ég hef stundum hafið stuttar greinar í héraðsfréttablöðin með því að lýsa tengslum við héraðið. Á Vesturlandi spanna þau langt tímabil. Ég get rifjað upp ferðirnar með föður mínum, Guðmundi listamanni frá Miðdal, til Akraness eða Borgarness eða Ólafsvíkur í kringum 1960 þar sem efnt var til listsýninga eða unnið var að uppsetningu höggmynda. Til Búðardals að huga að hráefni til leirmunagerðar. Líka væri hægt að minnast á margar ferðir sem ég hef farið um landshlutann til að kynna náttúru og sögu; nú síðast með 95 manns, sendiherra gagnvart Íslandi og maka þeirra sem létu heillast af landslagi eða draugasögum,  fiskvinnslu á Rifi eða sjóminjasafni á Sandi og auðvitað af því að stíga fæti á snjóbreiður Snæfellsjökuls. Að þessu sögðu og mörgu ósögðu stendur þó tvennt upp úr. Ég hef bundist böndum við fjöllin; allt frá Hafnarfjalli, Skarðsheiði, Akrafjalli og Baulu til Ljósufjalla, Hítardalsfjalla og Jökulsins þar sem ég hef meira að segja leikið hann Hans í sjónvarpsmynd um Ferðina í iður jarðar, byggða á bók Jules Verne. Hæst ber þó, af því gleðin var svo mikil, klifurferð á Örninn (eða Tröllkarlinn) hjá Helgrindum sem okkur var sagt að væri fyrsta uppganga á þann tind. Hin minningin er bundin verkefni hjá verkfræðistofunni Línuhönnun og fjallaði um hvernig nýta mætti landsvæðið frá Hnappadal yfir í Norðurárdal til uppbyggilegrar ferðaþjónustu (Vannýtt auðlind á Vesturlandi).

Auk þessara tengsla tel ég mig hafa margþætta menntun, víðtæka þekkingu á mikilvægum málaflokkum eins og orkumálum og trausta reynslu á mörgum sviðum; einmitt til að gegna embætti forseta. Landsbyggðin hefur setið í mér allt frá því ég ólst upp í Mosfellssveit fjóra mánuði ár hvert til tvítugs. María, mín góða kona, tengist líka landsbyggðinni sterkum böndum, norðan af Siglufirði og úr sveit í Sléttuhlíð.

Forsetinn talar máli fólks, er þjóðkjörinn trúnaðarmaður, og hann laðar fram samræður, með- og mótrök, sem eru fyrsta skrefið til upplýstra ákvarðana og framkvæmda. Hann er ekki sá sem er meðmæltur eða tekur afstöðu á móti ólíklegustu málefnum; er ekki eins manns stjórnmálaflokkur eða ýmist í stjórnarandstöðu eða stjórnarsinni og blandar sér þá með beinum hætti í umræður á Alþingi. Beiti hann neitunarvaldi við undirskrift laga er hann vissulega að taka afstöðu með aðgerð sinni en það er þá í því tiltekna máli og vegna aðstæðna sem verða til þegar þing og mikill meirihluti landsmanna stefna í ólíkar áttir í meginmáli eða stjórnvöld sniðganga lýðræði.

Að þessu sögðu getur forseti annast mörg málefni og tekið virkan þátt í samfélagsumræðunni sem umræðubeinir (moderator), hvati og frjósamur leiðtogi. Gildir einu hvort um er að ræða samning við ESB, orkumál eða sjálfbærar náttúrunytjar. Vegna hlutlægni sinnar getur hann bryddað upp á meginmálum landsbyggðarinnar á margvíslegum vettvangi; allt frá iðnaði og nýsköpun eða þátttöku íbúa í fjarvinnu á tölvuöld til ábyrgrar ferðaþjónustu en þar eiga sveitir og bæir að gegna lykilhlutverki bæði við þjónustu en ekki síður við að varðveita og þróa menninguna sem er einmitt fjölskrúðug og öflug vegna dreifðrar búsetu. Hún nær raunar langt út yfir ferðaþjónustuna; er einn af grunnum samfélagsins.

Við hjónin sendum lesendum Skessuhorns kveðjur og hvetjum alla til að taka þátt í kosningunum með því að velja frambjóðanda eftir hæfni og persónuleika og standa af festu með honum hvað sem skoðanakannanir eða sigurmöguleikar benda til.

 

Ari Trausti Guðmundsson

 

 


Til baka


yfirlit greina

 
Vefpóstur
Vestfirðir Suð-Austurland Vesturland Austurland Norðurland Suð-Vesturland Landið allt Suðurland
Kjalarnes 09:20  V 2  12°C
Akrafjall 09:20  ASA 2  12°C
Hafnarfjall 09:20  NNA 4  11°C
Vatnaleið 09:20  NV 5  8°C
Hraunsmúli 09:20  NNA 4  12°C
Fróðárheiði 09:20  V 4  6°C
Brattabr. 09:20  N 4  8°C
Holtav.h. 09:20  N 4  9°C
Laxárdalsh. 09:20  NA 6  11°C
Svínad. 09:10  N 4  10°C
 
 
Samstarfsaðilar
Aðsendar greinar
 
Sveitarfélögin - fréttir
 
Fyrirtæki, stofnanir, þjónusta:
 
mbl.is - innlent