




28. júní 2012 15:01 |
Stefán Gíslason |
Forsetinn á að vera ein(n) af okkur |
Forseti Íslands er ekki stjórnmálamaður, eða á alla vega ekki að vera það, í það minnsta ekki á meðan hann sinnir forsetaembættinu. Forseti Íslands er leiðtogi. En þar er sama hætta uppi og í stjórnmálunum, að um leið og til verður eitthvað sem hægt er að kalla „leiðtogastétt“, þá er lýðræðið í hættu. Forseti sem tilheyrir „leiðtogastéttinni“ er líklegur til að taka sjálfstæðar ákvarðanir sem byggja fyrst og fremst á skoðunum hans sjálfs og því hvað hann sjálfur telur fólkinu fyrir bestu. Oft er talað um fílabeinsturna í þessu sambandi. Forsetinn hefur þá tekið sér hlutverk eins konar keisara sem talar til fólksins í stað þess að tala við það. Núverandi forseti Íslands tilheyrir „leiðtogastéttinni“ að mínu mati. Þess vegna tel ég brýnt að nota tækifærið sem gefst 30. júní nk. til að skipta um forseta. Við þurfum ekki sterkan leiðtoga sem talar til okkar, við þurfum traustan leiðtoga sem talar við okkur og deilir með okkur kjörum. Forseti Íslands þarf að tilheyra sömu stétt og fólkið í landinu. Þannig og aðeins þannig getur hann byggt upp gagnkvæmt traust og viðhaldið því til langs tíma. Þegar fólkið í landinu þarf á forsetanum að halda, þarf því að finnast hann vera einn af þeim. Þóra Arnórsdóttir tilheyrir hvorki „stjórnmálastéttinni“ né „leiðtogastéttinni“. Hún er ein af okkur, móðir á venjulegu heimili í daglegu amstri, og hefur jafnframt þá visku og víðsýni sem forseti Íslands þarf á að halda. Hún hefur því alla burði til að skilja aðstæður fólks, njóta trausts þess og geta talað máli þess. Þess vegna ætla ég að kjósa Þóru Arnórsdóttur 30. júní nk., sem forseta okkar allra. Stefán Gíslason umhverfisstjórnunarfræðingur Borgarnesi |
|
|
|
|
Samstarfsaðilar
|