Prentað miðvikudaginn 22. maí kl. 08:27 af www.skessuhorn.is
Yfirflokkur: Fyrirtæki - þjónustaYfirflokkur: FólkiðYfirflokkur: StjórnsýslaYfirflokkur: Skessuhorn
Spurning vikunnar

Fylgist þú með íslenska boltanum?

Já, alltaf

Já, stundum

Nei, aldrei

Vil ekki svara

Leitarvélar
Skessuhorn
Leit.is
Símaskrá
Firmaskrá
Embla
Google
Athyglisverðar síður

 

   

  

 

 

 

 

 

 

 

 

 

  

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 
11. júlí 2012 09:39

Árni Múli Jónasson

Um risnu og gjafir, hófsemi og hálfsannleika á hvolfi

Gunnar Sigurðsson, bæjarfulltrúi á Akranesi, birti grein í síðasta Skessuhorni sem hann kallaði „Reikula risnuframkvæmd“. Af greininni má ráða að Gunnar telji kostnað af risnu, gjöfum og móttöku gesta kominn svo úr böndunum hjá núverandi meirihluta í bæjarstjórn að þörf sé á sérstökum aðgerðum vegna þess og þá verður að skilja Gunnar svo að hann telji sig sýna sérstaka ábyrgð að þessu leyti og muni beita sér fyrir að komið verði böndum á þennan óhóflega kostnað. Þessi grein Gunnars er að mínu mati afar athyglisverð, svo að ekki sé meira sagt og þó að mig langi satt að segja afskaplega lítið að elta ólar um þetta við hann er óhjákvæmilegt að koma á framfæri við lesendur Skessuhorns svolitlum upplýsingum varðandi risnukostnað hjá Akraneskaupstað og þróun hans til að lesendur geti sjálfir dæmt um hvort sá kostnaður er farinn úr böndum og ef lesendur telja svo vera hvort Gunnar Sigurðsson, bæjarfulltrúi, sé þá endilega betur til þess fallinn að koma böndum á hann en undirritaður og núverandi meirihluti bæjarstjórnar.

 

 

 

Í ofannefndri grein sinni vísar Gunnar Sigurðsson til skýrslu endurskoðenda vegna ársreiknings Akraneskaupstaðar 2011 en þar segir m.a:

 

„Á árinu var varið um 5,4 millj. kr. til móttöku gesta, risnu og gjafa eða um 2,5 millj. kr. umfram áætlun eða 87%. Skráningu um tilefni risnu og gjafa er víða ábótavant og í flestum tilfellum er ekki skráð hverjir njóta. Við teljum eðlilegt að bæjarstjórn móti reglur um móttöku gesta, risnu og gjafir, þ.m.t. gagnvart kjörnum fulltrúum og starfsmönnum.“

 

Undirritaður tekur undir þessa ábendingu endurskoðenda um að skráningu tilefna sé of oft ábótavant, enda var því komið á framfæri þegar við afgreiðslu ársreiknings, bæði við forstöðumenn sviða og stofnana kaupstaðarins sem ábyrgir eru fyrir útgjöldunum, svo og starfsmönnum bókhalds Akraneskaupstaðar, sem munu framvegis fylgjast betur með skráningu þessara upplýsinga þegar reikningar koma til skráningar og greiðslu. Séð verður til þess að þessi skráning verði framvegis í lagi og allir reikningar beri með sér tilefni eins og endurskoðandi bendir réttilega á að skuli gert. Yfirstjórn kaupstaðarins tók skýrslu endurskoðenda til umfjöllunar og úrvinnslu strax og hún lá fyrir hvað einstakar ábendingar þar varðaði og fól ég þá m.a. starfsmanna- og gæðastjóra að hefja undirbúning að gerð reglna varðandi meðhöndlun risnu, gjafa og móttöku gesta til að leggja fyrir bæjarstjórn. Þá kannaði bæjarritari meðal annarra sveitarfélaga hvort slíkar reglur hefðu verið settar hjá þeim og samkvæmt þeirri könnun virðast sveitarfélög almennt ekki hafa séð ástæðu til setningu slíkra reglna.

 

Yfirmenn fjármála hjá Akraneskaupstað hafa hins vegar áður greint endurskoðanda frá því að þeir hafi talið og telji enn að framsetning hans á meintum umframkostnaði miðað við áætlun sé ekki rétt. Það álit byggist á því að ekki er áætlað á umrædda bókhaldslykla, þ.e. móttöku gesta, gjafir eða risnu á almennum stofnunum eða deildum nema í undantekningartilfellum og þá vegna einhverra sérgreindra tilvika. Fyrst og fremst er áætlað á þessa liði undir yfirstjórn. Litið hefur verið svo á af hálfu yfirstjórnar kaupstaðarins að komi til slíkra útgjalda, þ.e. vegna risnu, gjafa eða móttöku gesta hjá þeim skuli þau tekin af heildarfjárhagsáætlun viðkomandi stofnunar, enda hefur það verið meginmarkmiðið að þær héldu sig innan heildarfjárhagsáætlunar; án þess að nauðsynlegt væri að njörva útgjöldin niður á einstaka bókhaldslykla, sem eins og fyrr greinir er ekki endilega áætlað á. Við færslu reikninga í bókhaldi kaupstaðarins eru útgjöldin síðan færð á rétta bókhaldslykla eftir efni og eðli þeirra, í samræmi við reglur og færslu bókhalds sveitarfélaga. Í ljósi framangreinds verða útgjöld eins og hér um ræðir stundum umfram samþykkta fjárhagsáætlun, þó svo að viðkomandi deild/stofnun sé innan ramma fjárhagsáætlunar í heild sinni. Litið er svo á að forstöðumenn beri ábyrgð á rekstri sínum í heild sinni og skuli hafa það að leiðarljósi að reka stofnun sína innan fjárheimilda og hefur það tekist í langflestum tilvikum hjá stofnunum Akraneskaupstaðar undanfarin ár.

 

Í eftirfarandi töflu má sjá upplýsingar um kostnað vegna móttöku gesta, risnu og gjafa hjá Akraneskaupstað á árunum 2006 – 2011:

 

 

 

 

 

Ofangreindar fjárhæðir eru á verðlagi hvers árs fyrir sig.

Séu tölur hvers árs fyrir sig framreiknaðar til dagsins í dag miðað við meðalvísitölu hvers árs, kemur í ljós að meðaltal útgjalda undir þessum liðum var á árunum 2006-2009 samtals 13,3 millj. króna á ári, en á árunum 2010 og 2011 voru þessi útgjöld að meðaltali 6,6 millj. króna á ári. Þá kemur fram í töflunni að árleg útgjöld yfirstjórnar kaupstaðarins til móttöku gesta, risnu og gjafa voru einstök ár allt að þrisvar sinnum hærri á árunum 2006-2009 en þau voru á árunum 2010 og 2011.

 

Hófsemi er dygð og þegar um meðhöndlun almannafjár og ekki síst risnufjár er að ræða er það mjög mikil og mikilvæg dygð. Það er því afskaplega ánægjulegt og virðingarvert að Gunnar Sigurðsson skuli nú hvetja til þess að hófsemi sé gætt við ráðstöfun fjár til risnu, gjafa og móttöku gesta af hálfu Akraneskaupstaðar. Raunar er ég þó alveg klár á því að þannig sé nú á þeim málum haldið og þannig hafi það verið frá því að núverandi meirihluti bæjarstjórnar tók við og undirritaður kom til starfa hjá kaupstaðnum og því sé þessi hvatning Gunnars í sjálfu sér óþörf þó að hún sé auðvitað góð og gild og auðvitað er það svo að sjaldan er góð vísa of oft kveðin. Það hefði þó óneitanlega verið svolítið heppilegra og trúverðugra og betra fyrir allan almenning á Akranesi ef Gunnar hefði notað tækifærið þegar hann var forseti bæjarstjórnar á síðasta kjörtímabili og auk þess staðgengill bæjarstjóra til að setja reglur um risnu, gjafir og móttöku gesta hjá Akraneskaupstað og hefði þá beitt valdi sínu og áhrifum til að koma böndum á þessa kostnaðarliði. Þetta segi ég ekki síst vegna þess að kostnaður af risnu, gjöfum og móttöku hjá Akraneskaupstað var að meðaltali helmingi hærri á síðasta kjörtímabili þegar Gunnar Sigurðsson var forseti bæjarstjórnar og staðgengill bæjarstjóra en hann hefur verið þessi tvö ár sem liðin eru frá því að núverandi meirihluti tók við og ég tók við starfi bæjarstjóra. Og hjá yfirstjórn kaupstaðarins var umræddur kostnaður allt að þrisvar sinnum meiri á einstökum árum á síðasta kjörtímabili en hann hefur verið á yfirstandandi kjörtímabili. Og þó að hófsemi sé mikil dygð sem allir ættu að leitast við að tileinka sér og ekki síst við meðferð fjár sem þeir ekki eiga sjálfir eru þó til undantekningar frá þeirri góðu hófsemisreglu og ein þeirra snýr að sannleikanum. Hófsemi í meðhöndlun sannleikans er nefnilega ekki dygð, enda hafa vitrir menn bent á að hálfsannleikur sé óhrekjandi lygi og hálfur hálfsannleikur er eðli máls samkvæmt ennþá verri. Það er svo auðvitað alverst og alls engin dygð að helminga hálfsannleika og snúa honum svo á hvolf.

 

Árni Múli Jónasson,

bæjarstjóri á Akranesi

 


Til baka


yfirlit greina

 
Vefpóstur
Vestfirðir Suð-Austurland Vesturland Austurland Norðurland Suð-Vesturland Landið allt Suðurland
Kjalarnes 08:20  NNA 7  3°C
Akrafjall 08:10  A 7  3°C
Hafnarfjall 08:20  NNA 8  2°C
Vatnaleið 08:20  NNV 8  1°C
Hraunsmúli 08:20  NNA 7  3°C
Fróðárheiði 08:10  Logn -1  79%°C
Brattabr. 08:10  N 11  -1°C
Holtav.h. 08:20  N 10  -2°C
Laxárdalsh. 08:20  NNA 6  -0°C
Svínad. 08:20  N 8  1°C
 
 
Samstarfsaðilar
Aðsendar greinar
 
Sveitarfélögin - fréttir
Grundarfjarðarbær: Köttur í óskilum
Stykkishólmsbær: Tilkynning - Athugið
Stykkishólmsbær: 296. fundur bæjarstjórnar
Borgarbyggð: Ljóð unga fólksins
Grundarfjarðarbær: Fjarmenntaskólinn
 
Fyrirtæki, stofnanir, þjónusta:
 
mbl.is - innlent