Þetta er það sem ég les út úr auglýsingu um tillögu að breytingu á deiliskipulagi, Grenjar-hafnarsvæði, sem til næstu mánaðamóta er til kynningar og athugasemda fyrir þá sem áhuga hafa. Sjá heimasíðu Akraneskaupstaðar.
Á þessu svæði rís skerjagarðurinn hæst, Vesturflös/Norðurflös, og yrði sorglegt og nær óbærilegt ef hluti hans hyrfi okkur sjónum undir eða bak við grjótfyllingu. Og Krókalónið gjörbreytist og spillist.
Þetta er galið. Ég leyfi mér að fara fram á að menn nái markmiðum sínum um aukið athafnarými án þess að skerða Krókalónið frekar en orðið er.
Guðbjörg Róbertsdóttir
|