Prentað miðvikudaginn 19. júní kl. 23:28 af www.skessuhorn.is
Yfirflokkur: Fyrirtæki - þjónustaYfirflokkur: FólkiðYfirflokkur: StjórnsýslaYfirflokkur: Skessuhorn
Spurning vikunnar

Ferð þú á bæjar- eða héraðshátíð í sumar?

Já, fleiri en eina

Já, eina

Veit það ekki

Nei

Leitarvélar
Skessuhorn
Leit.is
Símaskrá
Firmaskrá
Embla
Google
Athyglisverðar síður

 

   

  

 

 

 

 

 

 

 

 

 

  

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 
25. júlí 2012 16:01

Árni Múli Jónasson

Athugasemd við grein

Gunnar Sigurðsson, bæjarfulltrúi, ritar grein í síðasta Skessuhorn sem hann kallar „Vanstillt viðbrögð bæjarstjóra“ og er þar með upplýsingar varðandi fjármál Akraneskaupstaðar sem ég get ekki stillt mig um að gera svolitlar athugasemdir við þó að ég geri ráð fyrir að Gunnari þyki það sýna einhvers konar vanstillingu af minni hálfu. Í þessari grein er Gunnar enn við sama heygarðshornið og lætur sjálfum sér og lesendum Skessuhorns nægja svona u.þ.b. hálfsannleikann og varla það. Gunnar lætur þess nefnilega alveg ógetið í grein sinni að bréf það sem eftirlitsnefnd með fjármálum sveitarfélaga sendi Akraneskaupstað nýlega byggist á nýsettum lögum og reglum varðandi fjármál sveitarfélaga og því er lítil furða að sveitarfélög og þ.m.t. Akraneskaupstaður hafi ekki fengið slíkt bréf áður. Þá lætur Gunnar þess einnig ógetið að eins og fram hefur komið í fjölmiðlum hafa hátt í þrjátíu sveitarfélög fengið svona bréf frá eftirlitsnefndinni vegna skulda- eða rekstrarstöðu, m.a. Reykjavíkurborg. Að þessu sögðu vil ég þó taka fram að ég er algjörlega sammála Gunnari um að fullt tilefni er til að taka þetta bréf eftirlitsnefndar mjög alvarlega og fjármál Akraneskaupstaðar mjög föstum tökum. Í því sambandi breytir engu þó að fjölmörg önnur sveitarfélög séu í sömu stöðu að því leyti.

 

Af umræddri grein Gunnars má ráða að hann telji sig búa yfir stillingu af einhverri óskilgreindri tegund í miklu stærri skömmtum en ég undirritaður og ég skil það svo að honum finnist ég geta tekið hann mér til fyrirmyndar að því leyti og ætla ég hér með að lofa Gunnari því að hugleiða það allt mjög vel. Og þó að ég vilji alls ekki hvetja Gunnar til að láta af þessari miklu stillingu sinni ætla ég þó að leyfa mér að vera svo frekur og sjálfumglaður að hvetja hann til að stilla sig ekki allt of vel um að segja allan sannleikann. Og mér fyndist satt að segja miklu virðingarverðara af honum ef hann stillti sig betur um að vera með dylgjur og hálfsannleika varðandi risnukostnað hjá núverandi meirihluta bæjarstjórnar en stillti sig hins vegar síður um að útskýra hvernig á því stendur að risnukostnaður var miklu hærri hjá Akraneskaupstað og ekki síst hjá yfirstjórn kaupstaðarins á síðasta kjörtímabili þegar Gunnar var forseti bæjarstjórnar og leysti bæjarstjóra af en hann hefur verið frá því að núverandi meirihluti tók við og ég tók við starfi bæjarstjóra. Ég er viss um að Gunnar þarf ekkert að óttast að vera sakaður um vanstillingu þó að hann stilli sig ekki um það.

 

Árni Múli Jónasson,

bæjarstjóri

 


Til baka


yfirlit greina

 
Vefpóstur
Vestfirðir Suð-Austurland Vesturland Austurland Norðurland Suð-Vesturland Landið allt Suðurland
Kjalarnes 23:10  SV 0  10°C
Akrafjall 23:10  ANA 5  10°C
Hafnarfjall 23:10  NA 4  9°C
Vatnaleið 23:10  NV 4  8°C
Hraunsmúli 23:10  NA 5  13°C
Fróðárheiði 23:10  NV 5  8°C
Brattabr. 23:10  NA 6  6°C
Holtav.h. 23:10  N 6  4°C
Laxárdalsh. 23:10  NA 5  5°C
Svínad. 23:00  NNA 4  8°C
 
 
Samstarfsaðilar
Aðsendar greinar
 
Sveitarfélögin - fréttir
 
Fyrirtæki, stofnanir, þjónusta:
 
mbl.is - innlent