Það er því fráleitt eins og haldið hefur verið fram að þessi frumvörp sé tilraun til þess að leiða fram sátt. Þau leiða til hins gagnstæða.
Það sem liggur fyrir er meðal annars þetta:
• Verð frumvörpin samþykkt, liggur fyrir að um helmingur stærstu sjávarútvegsfyrirtækjanna mun ekki ráða við skuldbindingar sínar.
• 75% krókaaflamarksútgerðanna ( minni bátarnir) samkvæmt úrtaki sérfræðinga kemst í greiðsluþrot.
• Afleiðingar þessa verða síðan stórfelld gjaldþrot þjónustuaðila þessara fyrirtækja um land allt
• Sjávarbyggðir og sveitarfélög sem háð eru sjávarútvegi verða fyrir óbætanlegu tjón. Veldur mikilli röskun byggðar.
• Virðisrýrnun í sjávarútvegi mun nema hundruðum milljarða króna, sem leiðir síðan til verri viðskiptakjara, hærri fjármagnskostnaðar og er afleiðing af verri rekstri fyrirtækja sem frumvörpin munu hafa í för með sér, verði þau samþykkt.
• Afskriftir banka og fjármálafyrirtækja munu væntanlega aukast um að minnsta kosti 50 milljarða, vegna áhrifa lagasetningar þeirrar sem er áformuð. Það leiðir minna svigrúms til annarra skuldaleiðréttinga, hærri vaxtakostnaðar alls almennings, lakari innlánskjara og stórtjóns ríkissjóðs, vegna eignaraðildar ríkisins að fjármálafyrirtækjum.
• Rökstutt hefur verið að frumvörpin stangist á við stjórnarskrána í veigamiklum atriðum.
• Sú aðferð sem frumvörpin boða, mun stuðla að lakari umgengni um fiskimiðin og þar með sóunar á fiskveiðiauðlindinni.
• Heildarafrakstur þjóðarinnar og þar með sveitarfélaga og ríkisins af sjávarútveginum mun minnka, þrátt fyrir stór hækkaða gjaldtöku.
Það er því mikið í húfi að horfið verði af þessari ólánsbraut.
Einar Kristinn Guðfinnsson, alþingismaður
|