Prentað miðvikudaginn 19. júní kl. 09:44 af www.skessuhorn.is
Yfirflokkur: Fyrirtæki - þjónustaYfirflokkur: FólkiðYfirflokkur: StjórnsýslaYfirflokkur: Skessuhorn
Spurning vikunnar

Ferð þú á bæjar- eða héraðshátíð í sumar?

Já, fleiri en eina

Já, eina

Veit það ekki

Nei

Leitarvélar
Skessuhorn
Leit.is
Símaskrá
Firmaskrá
Embla
Google
Athyglisverðar síður

 

   

  

 

 

 

 

 

 

 

 

 

  

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 
24. maí 2012 09:45

Gunnar Sigurðsson

Braskað með bankaviðskipti

Á fundi bæjarráðs Akraness í febrúar voru lögð fram gögn um tilboð Landsbankans til Akraneskaupstaðar um hugsanleg kaup bæjarfélagsins á Suðurgötu 57, sem oftast er nefnt Landsbankahúsið. Á tímum meirihluta sem kenna vill sig við opna stjórnsýslu er forsaga málsins hins vegar athyglisverð og hefur hún komið í ljós eftir því sem fleiri gögn koma fram í dagsljósið.

Þann 30. júní 2011 sendi Árni Múli Jónasson bæjarstjóri bréf til Landsbankans þar sem hann leggur fram tilboð í húsið að fjárhæð 35 milljónir króna. Þann 2. september komu Landsbankamenn í heimsókn til Akraness og hittu þá m.a. forsvarsmenn bæjarfélagsins og við það tækifæri var málið aftur tekið til umræðu og nú varð niðurstaðan sú að bærinn sendi formlegt erindi vegna kaupa á húsinu. Það erindi sendi bæjarstjóri bankanum 26. september. Eru þar nefndar ýmsar hugmyndir um nýtingu, allt frá aðstöðu fyrir eldri borgara til reksturs kaffihúss.

Málið var rætt áfram meðal ákveðinna stjórnenda bæjarins og á fundi sem haldinn var þann 6. janúar 2012 tilkynna forsvarsmenn Landsbankans þeim Sveini Kristinssyni, Guðmundi Páli Jónssyni, Árna Múla Jónassyni og Guðjóni Steindórssyni að bankinn sé tilbúinn að láta húsið af hendi fyrir 35 milljónir króna auk þess sem bankaviðskipti Landsbankans og bæjarins verði framlengd um fjögur ár og það sem meira er, bankaviðskipti Höfða hjúkrunar- og dvalarheimilis og gjafasjóðs heimilisins. Það vekur sérstaka athygli að bankaviðskipti, sem meirihluti bæjarstjórnar lofaði að bjóða út, skuli blandast í möguleg húsakaup og einnig viðskipti Höfða, sem rekið er af Hvalfjarðarsveit auk Akraneskaupstaðar.

Svo virðist sem forsvarsmenn meirihluta bæjarstjórnar líti á það með velþóknun að umrædd bankaviðskipti verði gjaldmiðill með þessum hætti því undirbúningur að útboði bankaþjónustu hefur verið stöðvaður þó ákvörðun um slíkt hafi ekki verið tekin fyrir opnum tjöldum. Frá því að bæjarstjóri skrifar fyrsta bréfið um meintan áhuga bæjarstjórnar Akraness þann 30. júní líða sjö og hálfur mánuður þar til málið kemur í dagsljósið með formlegum hætti í bæjarráði. Er þetta opna stjórnsýslan sem sífellt er verið að boða?

Að kaupa Landsbankahúsið undir starfsemi bæjarins er ákvörðun sem taka þarf að yfirlögðu ráði og skýrri stefnu til hvers nota á húsið. Í okkar huga er það skoðunarverð hugmynd að þar verði í framtíðinni skrifstofur bæjarins. Kaup á húsinu verða þá að tengjast makaskiptum á núverandi skrifstofuhúsnæði bæjarins. Húsið er afar illa farið og kunnugir telja að endurnýjun þess muni ekki kosta undir 200 milljónum eigi að koma því í boðlegt stand og mat framkvæmdastjóra Framkvæmdastofu er að lágmarksviðgerðir svo nota megi húsið til bráðabirgða kosti ekki minna en 22 milljónir króna. Ábyrgðarlaust er því að leggja í fjárfestingu sem þessa án þess að hafa skýra sýn til hvers á að nota húsið, ekki bara kaupa það til að aðrir kaupi það ekki.

Að bæjarfulltrúar meirihlutans séu hins vegar tilbúnir til þess að braska með bankaviðskipti bæjarfélagsins með því að hætta við útboð þeirra eru tíðindi sem vart verður trúað eftir öll þau stóru orð sem fallið hafa um útboðsmál á undanförnum árum. Þar fara orð og athafnir greinilega ekki saman.

 

Gunnar Sigurðsson

Höf. er bæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins á Akranesi.

 

 


Til baka


yfirlit greina

 
Vefpóstur
Vestfirðir Suð-Austurland Vesturland Austurland Norðurland Suð-Vesturland Landið allt Suðurland
Kjalarnes 09:30  NNV 1  11°C
Akrafjall 09:30  ASA 3  12°C
Hafnarfjall 09:30  NNA 4  11°C
Vatnaleið 09:30  NV 4  8°C
Hraunsmúli 09:30  N 4  11°C
Fróðárheiði 09:30  VNV 3  6°C
Brattabr. 09:30  N 4  9°C
Holtav.h. 09:30  N 4  9°C
Laxárdalsh. 09:30  NA 6  11°C
Svínad. 09:30  NNA 4  11°C
 
 
Samstarfsaðilar
Aðsendar greinar
 
Sveitarfélögin - fréttir
 
Fyrirtæki, stofnanir, þjónusta:
 
mbl.is - innlent