Í grunnskóla Grundarfjarðar eru nú rúmlega 100 nemendur. Þeim hefur fækkað hratt síðustu ár og samfélagið í Grundarfirði er að eldast. Teikn eru á lofti um að aftur verði viðsnúningur á næstunni, börnum á leikskóla er að fjölga, yngra fólk að flytja í bæinn og því stígandi nemendafjöldi á næstunni.
Nýr aðstoðarskólastjóri hefur verið ráðin að grunnskólanum en það er Helga Guðrún Guðjónsdóttir sem tekur við starfinu 1. ágúst næstkomandi. Hún hefur víðtæka reynslu af skólastarfi bæði stjórnun og kennslu auk þess að vera með Dipl.Ed próf í uppeldis- og menntunarfræðum á stjórnun menntastofnana. Samhliða starfi við grunnskóla hefur hún verið formaður UMFÍ síðustu ár.
Í haust mun grunnskólinn taka þátt í þróunarverkefni sem styrkt er úr Sprotasjóði í samstarfi við Grunnskólann í Sandgerði, Stóru-Vogaskóla, Umboðsmann barna, Unicef og UMFÍ. Nafn verkefnisins er „Lýðræði er leikur einn“ og inntak þess er virkt lýðræði, mannréttindi og samskipti í skólum. Verkefnisstjóri er Guðrún Snorradóttir.
Anna Bergsdóttir,
skólastjóri Grunnskóla Grundarfjarðar |