Prentað laugardaginn 25. maí kl. 06:27 af www.skessuhorn.is
Yfirflokkur: Fyrirtæki - þjónustaYfirflokkur: FólkiðYfirflokkur: StjórnsýslaYfirflokkur: Skessuhorn
Spurning vikunnar

Hvernig líst þér á nýju ríkisstjórnina?

Mjög illa

Frekar illa

Hlutlaus

Frekar vel

Mjög vel

Leitarvélar
Skessuhorn
Leit.is
Símaskrá
Firmaskrá
Embla
Google
Athyglisverðar síður

 

   

  

 

 

 

 

 

 

 

 

 

  

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 
Skessuhorn, 24. maí 2013

Landsþing Slysavarnafélagsins Landsbjargar fer nú fram á Akureyri. Þingið var sett nú eftir hádegi í Íþróttahöllinni að viðstöddum Ólafi Ragnari Grímssyni forseta Íslands, en forsetinn er verndari félagsins. Ólafur Ragnar ávarpaði þingið og kom meðal annars inn á gildi Slysavarnarfélagsins Landsbjargar í íslensku samfélagi og hversu öflugt sameiningartákn félagið er þegar á reynir. Um 600 sjálfboðaliðar félagsins úr björgunarsveitum og slysavarnadeildum um land allt sitja þingið þar sem stefna þessa stóra félags til framtíðar verður mörkuð. Í kvöld stefnir svo í eina stærstu grillveislu landsins þegar hópurinn mun gæða sér á hamborgurum sem frambjóðendur til stjórnar félagsins sjá um að matreiða ofan í gesti. Samhliða þinginu keppa hópar frá björgunarsveitum um land allt í björgunarleikum og hafa margir þeirra æft stíft í vetur fyrir keppnina sem felst í að leysa margvísleg verkefni sem minna á þau sem sveitirnar takast á við í útköllum. 

 

 

 

 

Skessuhorn, 24. maí 2013

Bráðabirgðaniðurstöður rannsóknar vegna andláts hjóna í hjólhýsi þeirra í Þjórsárdal 19. maí sl. hafa leitt í ljós að samsetning á reykröri við gasofn í innréttingu hússins var í sundur upp undir lofti þess, á bak við innréttingu. Í tilkynningu frá lögreglu segir að þetta hafi leitt til þess að útblástursloft  barst inn í húsið frá útblæstri kyndingarinnar í stað þess að fara út um reykháf. „Þrýstijafnarar og annar búnaður fyrir gaslagnir er enn til rannsóknar hjá tæknideild lögreglu höfuðborgarsvæðisins og Vinnueftirliti en fyrsta skoðun bendir til þess að þeir séu í lagi. Enn er beðið endanlegrar niðurstöðu krufningar en bráðabirgðaniðurstöður styðja það sem fram er komið við rannsókn á búnaði hússins. Hjólhýsið sem um ræðir hafði verið fastsett á staðnum og var notað sem sumarbústaður þar,“ segir í tilkynningu lögreglu.  

 

 

 

 

Skessuhorn, 24. maí 2013

Krókaaflamarksbáturinn Bíldsey frá Stykkishólmi hefur aflað vel fyrir austan land að undanförnu. Á þriðjudaginn kom báturinn með metafla til hafnar á Breiðdalsvík, tæp 26 tonn, mestmegnis þorsk. Þetta er mestur afli sem fengist hefur í einni lögn á línu. Skipverjar voru að vonum glaðir í bragði eftir þessa vel heppnuðu veiðiferð. Einn þeirra, Páll Vignir Þorbergsson, segir í fésbókarfærslu: „Í ágúst í fyrra settum við áhöfnin á Bíldsey SH 65 Íslandsmet í lönduðum afla úr einni veiðiferð á smábát, tæp 23 tonn. Það met náði ekki að standa óhreift í ár því í gærkvöldi lönduðum við mun meiri afla. Biðjum fyrir góðar kveðjur heim héðan úr Breiðdalnum þar sem allt er að gerast.“

 

 

 

 

 

Skessuhorn, 24. maí 2013

Rétt um hálfeitt í dag voru björgunarsveitir í Skagafirði kallaðar út þar sem tilkynning barst um að bíll hefði lent út í Norðurá, vestan Öxnadalsheiðar. Um var að ræða Útkall rauður sem er hæsta viðbragð og krefst tafarlausra viðbragða. Svo vel vildi til að Björgunarsveitin Klakkur frá Grundarfirði var á leiðinni á landsþing Slysavarnafélagsins Landsbjargar sem haldið er á Akureyri um helgina. Voru þeir aðeins í nokkur hundruð metra fjarlægð frá slysstaðnum. Í bílnum var ungur maður og þegar björgunarmenn komu að var hann inni í bílnum út í ánni. Tókst að koma honum upp á þak bílsins og var honum bjargað þaðan. Er hann nú leið undir læknishendur til skoðunar við fyrstu sýn virðist hann óslasaður. Eftir á meta hvernig bílnum verður náð úr ánni en ljóst að þarna fór betur en á horfðist, að því er fram kemur í tilkynningu frá Landsbjörgu.

 

 

 

 

Skessuhorn, 24. maí 2013

Rétt fyrir klukkan eitt í dag var björgunarbáturinn Þórður Kristjánsson kallaður út frá Reykjavík til aðstoðar báti sem er vélarvana innst í Hvalfirði. Bátnum tókst að koma út rekankeri svo enginn hætta er á ferðum, segir í tilkynningu frá Landsbjörgu. Áætlað er að Þórður muni taka bátinn í tog til næstu hafnar. Ekki er ljóst á þessari stundu hvenær það verður en reikna má með að það verði um nónbil í dag.

 

UPPFÆRT:

Skipverjar á bátnum Fjólu GK 121, sem þarna voru í vandræðum, afturkölluðu nokkru síðar hjálparbeiðnina þar sem þeim hafði tekist að koma bátnum í gang. Björgunarskipið Þórður snéri því við til hafnar í Reykjavík.

 

 

 

 

Skessuhorn, 24. maí 2013

Heimilisfólk á hjúkrunar- og dvalarheimlinu Brákarhlíð í Borgarnesi hófst handa við að flytja sig um set í endurbætta þriðju hæð heimilisins í gær, en hæðin er hluti af eldra húsnæði þess. Endurbætur hafa staðið yfir í vetur en framkvæmdir hófust síðasta sumar í kjölfar þess að lokið var við framkvæmdir í nýju álmu heimilisins sem liggur meðfram Ánahlíð. Það er Byggingafélagið Borgfirðingar ehf. sem sér um framkvæmdir í Brákarhlíð. Í þessum áfanga breytinganna eru sjö herbergi á þriðju hæðinni tekin í notkun, en alls verða herbergin á hæðinni 12 við lok framkvæmda. Á hæðinni eru að auki tvær rúmgóðar setustofur en stærð þeirra, herbergja og gangs er ámóta og á hæðum nýju álmu heimilisins. Að sögn Björns Bjarka Þorsteinssonar framkvæmdastjóra Brákarhlíðar standa flutningar yfir næstu daga og verður þeim vonandi lokið hið bráðasta.

 

Sjá nánari umfjöllun um stöðu framkvæmda við Brákarhlíð í næsta tölublaði Skessuhorns.

 

 

 

 

 

 
Vefpóstur
Á döfinni
Sun
Mán
Þri
Mið
Fim
Fös
Lau
28



20

26
1

7
8

Framundan
Borgarbyggð: Í dag
Vallarsel: 27. 5 2013
kl. 01:00
Grunnskóli: 27. 5 2013
kl. 08:05
Garðasel: 27. 5 2013
kl. 10:00
Stykkishólmur: 28. 5 2013
Garðasel: 28. 5 2013
kl. 08:30
Dalabyggð: 28. 5 2013
kl. 15:00
Dalabyggð: 28. 5 2013
kl. 17:00
Vestfirðir Suð-Austurland Vesturland Austurland Norðurland Suð-Vesturland Landið allt Suðurland
Kjalarnes 06:20  SSV 4  5°C
Akrafjall 06:10  SSV 4  6°C
Hafnarfjall 06:20  S 9  5°C
Vatnaleið 06:20  SSA 5  5°C
Hraunsmúli 06:20  SV 5  6°C
Fróðárheiði 06:10  SA 3  3°C
Brattabr. 06:10  S 10  3°C
Holtav.h. 06:20  SSV 15  2°C
Laxárdalsh. 06:20  SV 11  4°C
Svínad. 06:20  S 10  4°C
 
 
Vaðnes- Eignarlóðir
Til sölu fallegar sumarhúsalóðir í kjarrivöxnu landi Vaðness í Grímsnes- og Grafningshreppi. Allar nánari upplýsingar í síma 896-1864.
 
Týndur nýlegur blár Samsung Galaxy SIII
Tapaði bláum galaxy SIII fimmtudaginn 23 maí. Síminn er í hulstri. Gæti verið á leiðinni upp í hesthúsahverfið Æðarodda á Akranesi. Upplýsingar í síma 846-9604 eða 431-2220. Fundarlaun í boði.
Samstarfsaðilar
Aðsendar greinar
 
Sveitarfélögin - fréttir
 
Fyrirtæki, stofnanir, þjónusta:
 
mbl.is - innlent