




|
Skessuhorn, 18. maí 2013
Alvarlegt slys varð um klukkan hálf tvö í dag um fimm kílómetra vestan við Grundarfjörð á Snæfellsnesi þegar rúta og fólksbíll lentu í árekstri. Mikill viðbúnaður var vegna slysins og voru m.a. tvær þyrlur Landhelgisgæslunnar kallaðar út. Önnur þeirra fór hins vegar áleiðis vestur og sótti tvo slasaða menn sem hún flutti með sér á Landsspítalann í Fossvogi. Erfiðar aðstæður voru á slysstað, strekkingsvindur, suðaustanátt sem jafnan getur verið slæm á þessum slóðum og rigning. Alls voru fimmtán farþegar í rútunni, allt erlendir ferðamenn, en tveir voru í húsbílnum. Beita þurfti klippum til að ná farþegum húsbílsins út. Fjöldahjálpamiðstöð Rauða krossins var opnuð í Grundafirði og voru farþegar rútunnar fluttir þangað til aðhlynningar. Meiðsli þeirra eru talin minniháttar. Samhæfingamiðstöð almannavarna í Skógarhlíð var einnig virkjuð vegna slysins.
|
||
|
Skessuhorn, 18. maí 2013
Hrafnar taka oft ástfóstri við ákveðna staði og helga sér umráðasvæði til búsetu. Það á einnig við um hrafnshjón sem búa á Grundartanga, í daglegu tali kallaðir Álverskrummarnir. Hröfnunum virðist vera sama um allt sem heitir segulsvið í nágrenni verksmiðjunnar því þeir hafa búið sér til laup á stigapalli fyrir utan kerskála Norðuráls. Búið er að koma fyrir upptökuvél í nágrenni laupsins og bíða starfsmenn spenntir og munu fylgjast með ungunum þegar þeir klekjast úr eggjunum.
|
Skessuhorn, 18. maí 2013
Björgunarbáturinn Björg í Snæfellsbæ fór í gær sex mílur norður af Rifi á Snæfellsnesi til aðstoðar rækjubátinum Esjari SH. Var Esjar á togi þegar stykki milli vélar og skrúfuöxuls brotnaði með þeim afleiðingum að báturinn varð stjórnlaus. Að sögn Páls Stefánssonar skipstjóra á Björgu var ágætis veður á þessum slóðum og gekk því greiðlega að draga Esjar til hafnar í Rifi.
|
|
|
Skessuhorn, 18. maí 2013
Maðurinn sem lést í vélhjólaslysi á Akranesi sl. fimmtudag hét Bergur Júlíusson, 51 árs og búsettur í Reykjavík. Bergur var skipverji á togaranum Sturlaugi Böðvarssyni AK og var þegar slysið átti sér stað á heimleið eftir vinnu um borð í skipinu. Bergur lætur eftir sig son og tvær dætur á aldrinum 19-26 ára, aldraða foreldra, systkini og sambýliskonu.
|
Skessuhorn, 18. maí 2013
Breiðafjarðarferjan Baldur fer aukaferðir í dag, laugardag, vegna þess að Vestfjarðavegur nr. 60 er lokaður í Kjálkafirði sökum hættu á skriðuföllum. Baldur lagði af stað frá Stykkishólmi klukkan níu í morgun og fer frá Brjánslæk kl. 12.00. Áætlað er að um 150 þúsund rúmmetrar af mold og grjóti hafi fallið á veginn í Kjálkafirði í apríl og var veginum lokað í gærkvöldi um óákveðinn tíma þar sem hætta er á frekari skriðuföllum. Fréttavefurinn www.mbl.is greindi frá.
|
|
|
Skessuhorn, 17. maí 2013
Nú kl. 17 í dag var ný þjónustustöð N1 við Brúartorg í Borgarnesi opnuð. Fjöldi viðskiptavina biðu með eftirvæntingasvip fyrir utan innganga stöðvarinnar þegar þeir Sigurður Guðmundsson stöðvarstjóri og Árni Guðmundsson verkefnastjóra framkvæmda við þjónustustöðina opnuðu hana fyrir gestum. Ekki leið að löngu þangað til fyrsti viðskiptavinurinn hafði verslað en hann heitir Björgvin Árnason. Þó að N1 stöðin í Borgarnesi hafi verið opnuð er framkvæmdum við hana ekki alveg lokið. Að sögn Árna Guðmundssonar verður þeim lokið fyrir mánaðarmótin. Þjónustöðin verður loks formlega tekin í notkun með pompi og prakt föstudaginn 31. maí nk.
|
Skessuhorn
|
|
Á döfinni Sun Mán Þri Mið Fim Fös Lau 28 20 26 1 5 6 7 8 Framundan
Borgarbyggð: Í dag
Borgarbyggð: Í dag
Grundarfjörður: Á morgun
kl. 08:00
Borgarbyggð: Á morgun
kl. 11:00
Akranes: 21. 5 2013
Garðasel: 21. 5 2013
kl. 09:00
Dalabyggð: 21. 5 2013
kl. 13:00
Dalabyggð: 21. 5 2013
kl. 15:00 |
|
|
Viltu losna við bjúg og sykurþörf FLJÓTT ?
Viltu losna við BJÚG og SÆTINDAÞÖRF fljótt? Oolong og Pu-erh teið er frábær lausn. 100% hreint te án auka- og rotvarnarefna. Mikil brennsla, gott fyrir andlega og líkaml. heilsu. 1 Oolong + 1 Pu-erh 200 pokar á 7.000. 1 pk. á 3.800 S:845 5715 Nína
| Bifvélavirki / vélvirki
Vélabær ehf. óskar eftir starfsmanni vönum viðgerðum á bílum, hjólbörðum, dráttarvélum og heyvinnuvélum. Þarf að geta hafið störf sem fyrst.
Upplýsingar í síma: 435-1252 eða 893-0688 Björn, netfang:velabaer@vesturland.is |
|
Samstarfsaðilar
|