




|
www.akranes.is, 19. júní 2013 Sigurbjörg Þrastardóttir bæjarlistamaður 2013 |
|
Sigurbjörg Þrastardóttir rithöfundur var tilnefnd bæjarlistamaður Akraneskaupstaðar við hátíðlega athöfn sem fór fram í tengslum við 17. júní hátíðarhöld á Akranesi. Sigurbjörg er fædd á Akranesi árið 1973 og ólst þar upp. Hún lauk BA prófi í almennri bókmenntafræði frá Háskóla Íslands árið 1997 og námsbraut í hagnýtri fjölmiðlun árið 1998. Hún var blaðamaður á Morgunblaðinu árin 1998 til 2006 og pistlahöfundur í Lesbók árin 2002 – 2006. Sigurbjörg var í stjórn rithöfundasambands Íslands frá 2003 til 2011 og er í stjón PEN klúbbsins á Íslandi. Sigurbjörg Þrastardóttir er mjög afkastamikill rithöfundur en hún hefur gefið út níu ljóðabækur og tvær skáldsögur frá því að fyrsta ljóðabókin hennar, Blálogaland kom út árið 1999. Ljóð Sigurbjargar hafa verið þýdd á ein tólf tungumál í tengslum við bókmenntaþing, ljóðahátíðir og útgáfu safnrita víðsvegar í Evrópu. Af annars konar verkefnum má... |
|
|
|
www.akranes.is, 19. júní 2013 17. júní á Akranesi |
|
17. júní hátíðarhöld fóru vel fram á Akranesi og var fjöldi manns mættur í miðbæinn til að taka þátt í hátíðar-og skemmtidagskrá. Jafnframt var sérstök dagskrá á safnasvæðinu um morguninn og fengu gestir sem mættu í þjóðbúningi rós að gjöf. Hér má sjá myndir Friðþjófs Helgasonar. |
|
|
www.akranes.is, 19. júní 2013 Skagastaðir fá styrk úr Lýðheilsusjóði |
|
Skagastaðir fengu nýlega styrk úr Lýðheilsusjóði að upphæð 400.000,- en starfið sem er á vegum Akraneskaupstaðar gengur út á að virkja unga atvinnuleitendur til athafna. Á þessu ári verða Skagastaðir þriggja ára en starfsemin flutti nýlega í nýuppgert húsnæði við Suðurgötu 57 eða Landsbankahúsið. Starfsemin er opin öllum atvinnuleitendum á aldrinu 16 - 30 ára og er opið virka daga kl. 9:00 til 15:00. Á myndinni er nýtt lógó Skagastaða sem unnið var af Unni Jónsdóttur, ein af ungum grafískum hönnuðum okkar Skagamanna. |
|
|
www.akranes.is, 19. júní 2013 Heimsókn frá Gaman saman |
|
Börnunum í Gaman saman sem er frístundaklúbbur fyrir fötluð og ófötluð börn í 5.- 10. bekk þótti skemmtilegast að fá að slá á bjölluna í bæjarþingsalnum þegar þau heimsóttu bæjarstjórann Regínu Ásvaldsdóttur á dögunum. Með í för var Ruth Rauterberg, sem leiðir hópinn en vert er að nefna að Akraneskaupstaður veitti Ruth nýlega viðurkenningu vegna framúrskarandi starfa með hópinn. Úr bæjarþingsalnum lá leiðin inn á skrifstofu bæjarstjórans þar sem þau spurðu hana spjörunum út. Þau vildu fá að vita hvort hún væri rík og hvort hún réði öllu. Líka hvort henni þætti gaman að vera bæjarstjóri og hvort að hún gæti hjálpað fólki að eignast hús. Við þökkum þeim kærlega fyrir heimsóknina og má hér sjá myndir úr henni. |
|
|
www.dalabyggd.is, 19. júní 2013 Gengið um Reykhólasveit |
|
Dagana 21. - 24. júní verður útivistarhelgin Gengið um sveit í Reykhólahreppi haldin í þriðja skipti. Um er að ræða lengri og skemmri göngur undir leiðsögn, sem ættu að hæfa öllum aldurshópum. Takmarkaður fjöldi er í löngu gönguna (kjötsúpugönguna) og mælt með því að fólk skrái sig í hana sem allra fyrst. Bætt hefur við leiðsögumanni í hana til að anna eftirspurn Mælt er með að fólk skrái sig fyrir 20. júní á netfangið info@reykholar.is eða í síma 894 1011 (Harpa Eiríksdóttir). Hægt er að skrá sig í göngur eftir 20. júní en þá er ekki afslátturinn veittur. Hægt er að kaupa helgarpakka og fjölskyldupakka sem gefur 50% afslátt í sund í laugarnar á Reykhólum og í Djúpadal, í þaraböðin hjá SjávarSmiðjunni á Reykhólum, á Báta- og hlunnindasýninguna á Reykhólum og á sýninguna hjá Össusetri Íslands í gamla Kaupfélaginu í Króksfjarðarnesi. Þar mun Handverksfélagið Assa jafnframt veita... |
|
|
|
www.akranes.is, 19. júní 2013 Starfsmenn gefa blóð |
|
Starfsmenn á bæjarskrifstofunni létu sig ekki vanta í blóðbankabílinn í dag. Yndislegir hjúkrunarfræðingar tóku á móti hópnum og voru sumir af skrifstofunni að fara í fyrsta skiptið, aðrir eftir smá hlé og nokkrir sem fara reglulega. Bæjarskrifstofan hvetur alla að fara í dag og gefa blóð því að blóðgjöf er lífgjöf. Blóðbankabílinn verður fyrir utan ráðhúsið til kl. 17:00 og tekur þetta aðeins 30 mínútur. |
|
|
www.stykkisholmur.is, 19. júní 2013 Félags- og skólaþjónusta |
![]() |
|
|
www.grundarfjordur.is, 19. júní 2013 Laus störf í heimaþjónustu |
![]() |
|
|
www.grundarfjordur.is, 19. júní 2013 Bókasafn Grundarfjarðar í sumar |
![]() |
|
|
www.dalabyggd.is, 18. júní 2013 Hrossaræktarsamband Dalamanna |
![]() |
|
| 2013 | ||||||||||
| jan | feb | mar | apr | maí | jún | |||||
| júl | ágú | sep | okt | nóv | des | |||||
| 2012 | ||||||||||
| jan | feb | mar | apr | maí | jún | |||||
| júl | ágú | sep | okt | nóv | des | |||||
| 2011 | ||||||||||
| jan | feb | mar | apr | maí | jún | |||||
| júl | ágú | sep | okt | nóv | des | |||||
| 2010 | ||||||||||
| jan | feb | mar | apr | maí | jún | |||||
| júl | ágú | sep | okt | nóv | des | |||||
| 2009 | ||||||||||
| jan | feb | mar | apr | maí | jún | |||||
| júl | ágú | sep | okt | nóv | des | |||||
| 2008 | ||||||||||
| jan | feb | mar | apr | maí | jún | |||||
| júl | ágú | sep | okt | nóv | des | |||||
| 2007 | ||||||||||
| jan | feb | mar | apr | maí | jún | |||||
| júl | ágú | sep | okt | nóv | des | |||||
| 2006 | ||||||||||
| jan | feb | mar | apr | maí | jún | |||||
| júl | ágú | sep | okt | nóv | des | |||||
| 2005 | ||||||||||
| jan | feb | mar | apr | maí | jún | |||||
| júl | ágú | sep | okt | nóv | des | |||||
| 2004 | ||||||||||
| jan | feb | mar | apr | maí | jún | |||||
| júl | ágú | sep | okt | nóv | des | |||||
| 2003 | ||||||||||
| jan | feb | mar | apr | maí | jún | |||||
| júl | ágú | sep | okt | nóv | des | |||||
| 2002 | ||||||||||
| jan | feb | mar | apr | maí | jún | |||||
| júl | ágú | sep | okt | nóv | des | |||||
| 2001 | ||||||||||
| jan | feb | mar | apr | maí | jún | |||||
| júl | ágú | sep | okt | nóv | des | |||||
| 2000 | ||||||||||
| jan | feb | mar | apr | maí | jún | |||||
| júl | ágú | sep | okt | nóv | des | |||||
|
|
|
Samstarfsaðilar
|