Það væsti ekki um fólkið sem var að bíða eftir strætó við biðskýlið hjá Skaganesti á Akranesi í blíðviðrinu í dag. Ólafur Kristófersson var að bregða sér í borgina og með honum var hans fólk af yngri kynslóðinni, Heiðrún Ósk Jóhannsdóttir og systurnar Elísa Rut og Dagný Björk Ásgeirsdætur. Ólafur var að fylgja unga fólkinu í borgina og ætlaði í smá útréttingar í leiðinni. Hann sagði kjörið að nýta strætó til þess ef ekki þyrfti að fara á milli margra staða. Sem kunnugt er lækkaði fargjaldið með strætó á Akranes nýlega og því má jafnvel búast við að fólk fari í auknum mæli að notfæra sér strætóferðirnar.
|