Skessuhorn, 19. júní 2013
Þorvaldur Örlygsson ráðinn þjálfari ÍA
|
Stjórn Knattspyrnufélags ÍA hefur ráðið Þorvald Örlygsson sem næsta þjálfara karlaliðs félagsins. Þorvaldur tekur við þjálfarastöðunni af Þórði Þórðarsyni sem sagði starfi sínu lausu í gær. Þorvaldur þjálfaði síðast lið Fram í Pepsi deildinni en sagði upp störfum í upphafi mánaðarins. Í tilkynningu frá Inga Fannari Eiríkssyni formanns KFÍA á heimasíðu félagsins segir að viðræður við Þorvald hafi byrjað seint í gærkvöld og hafi þeim síðan lokið með samkomulag í dag. Ingi segir Þorvald einn af reynslumestu þjálfurum landsins en hann á að baki farsælan feril sem leikmaður. Samningur ÍA og Þorvaldar er ótímabundinn með venjulegum gagnkvæmum uppsagnarfresti.
|
|
|
|
Skessuhorn, 19. júní 2013
Skessuhorn kemur út á morgun
|
Í þessari viku kemur Skessuhorn út á morgun, fimmtudaginn 20. júní í stað dagsins í dag, miðvikudag, eins og venjulega. Af þeim sökum fer lokavinnsla blaðsins fram í dag. Áskrifendur Skessuhorns fá því blað vikunnar í hendurnar á morgun.
|
|
Skessuhorn, 19. júní 2013
Heyskapur á Akranesi
|
„Sláttur á þessum opnu svæðum hefði þurft að vera byrjaður fyrir mánuði síðan,“ sagði Gísli Jónsson verktaki sem nýlega tók við grasslætti á opnum svæðum fyrir Akraneskaupstað. „Það er svo mikið gras á þessu að við verðum að grófslá þetta fyrst og fara síðan í fínslátt á eftir,“ sagði Gísli, þar sem hann var að flytja hey af tjaldstæðinu við Kalmansvík. Heyinu hafði verið rúllað upp án þess þó að pakka rúllunum. Mest allt flytur hann svo til urðunar á svokallaðan moldartipp norðan Akrafjalls. „Þetta væri vel nothæft í fóður fyrir hross og svo hafa kúbændur fengið hjá mér rúllur til að gefa kálfum,“ sagði Gísli þegar hann var spurður hvort ekki væri illa farið með heyið að urða það.
|
|
|
|
Skessuhorn, 19. júní 2013
Gengið um sveit í Reykhólahreppi
|
Um Jónsmessuna eða dagana 21. – 24. júní nk. verður útivistarhelgin „Gengið um sveit“ haldin í þriðja sinn í Reykhólahreppi. Um er að ræða lengri og styttri göngur undir leiðsögn sem ættu að hæfa öllum aldurshópum. Föstudagurinn er helgaður börnunum. Á Báta- og hlunnindasýningunni verður börnum boðið að láta teyma undir sér á hesti, einnig er ratleikur og farið í barnagöngu að Staðarfossi. Langa gangan þetta árið verður farin um Hallsteinsnes. Hún er 5-7 klukkustunda löng og gefur mikla möguleika á að sjá haferni. Þar að auki eru margvíslegar göngur í boði.
|
|
|
Skessuhorn, 19. júní 2013
Staðið í ströggli í fimm ár að fá leyfi til kræklingaræktar
|
Bergsveinn Reynisson bóndi á Gróustöðum við Gilsfjörð og formaður Skelræktar, samtaka kræklingaræktenda, sótti um leyfi til kræklingaræktar fyrir fimm árum. Enn er hann ekki kominn með leyfið og segir að ekki sé hægt að standa í því fyrir einyrkja að reyna að komast í gegnum eftirlits- og leyfisveitingakerfið hér á landi. Bergsveinn hefur áður vakið athygli á því hversu flókið og dýrt það er að afla tilskilinna leyfa. Það varð m.a. tilefni umræðna á Alþingi í fyrra en Bergsveinn segir ástandið hafi ekkert skánað síðan. Þvert á móti sé heldur eins og Umhverfisstofnun sé að herða tökin.
|
|
|
|
Skessuhorn, 19. júní 2013
Atvinnulausum fækkar um rúmlega hálft prósentustig í maí
|
Skráð atvinnuleysi í maí sl. var 4,3%, en að meðaltali voru 7.515 atvinnulausir í mánuðinum og fækkaði um 483 að meðaltali á landinu öllu frá apríl eða um 0,6 prósentustig. Þetta kemur fram í mánaðarlegu yfirliti Vinnumálastofnunar en atvinnuleysi nú mælist það minnsta frá haustmánuðum 2008. Atvinnulausum fækkaði að meðaltali um 229 á höfuðborgarsvæðinu en um 254 á landsbyggðinni. Atvinnuleysi á Vesturlandi var 2,3% í maí og lækkaði um hálft prósentustig frá apríl. Atvinnuleysið var 4,8% á höfuðborgarsvæðinu og minnkaði úr 5,3% í apríl. Á landsbyggðinni var það 3,5% og minnkaði úr 4,1% í apríl. Flestir voru án vinnu á Suðurnesjum, 6,5%. Minnst var atvinnuleysið á Norðurlandi vestra, 1,6 %. Skráð atvinnuleysi að meðaltali frá janúar til maí 2013 var 5,1%. Í maí fækkaði körlum um 395 að meðaltali en konum um 88 og var atvinnuleysið 3,8% meðal karla og 4,9% meðal kvenna.
|
|
Skessuhorn, 19. júní 2013
Karlakór Kjalnesinga býður til ókeypis tónleika á laugardaginn
|
 |
|
Skessuhorn, 19. júní 2013
Borgnesingar gerðu jafntefli á Hvammstanga
|
 |
|
Skessuhorn, 19. júní 2013
Á þriðja hundrað hross á kynbótasýningu í síðustu viku
|
 |
|
Skessuhorn, 19. júní 2013
Vefur fyrir Parkinson
|
 |
|